Körfuknattleiksmaðurinn Brenton Birmingham sem leikið hefur með Njarðvíkingum undanfarin ár mun spila með Grindvíkingum á næstu leiktíð að því er fram kemur á vef Víkurfrétta í kvöld.
Brenton segir í samtali við vef víkurfrétta að hann muni skrifa undir samning við Grindavík á næstu dögum en Grindvíkingar hafa lengi haft augastað á leikmanninum.
Brenton er 36 ára gamall sem skoraði að meðtali 21 stig fyrir Njarðvíkinga á leiktíðinni en eins og fram kom fyrr í dag er Teitur Örlygsson hættur þjálfun liðsins.