Magnús Gunnarsson, fyrirliði Íslandsmeistara Keflavíkur í körfuknattleik karla, mun væntanlega skrifa undir samning í kvöld um að leika með Njarðvíkingum á næstu leiktíð.
„Samningurinn við hann er klár og ég á von á að það verði skrifað undir í kvöld,“ sagði Jón Júlíus Árnason, formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkir í samtali við fréttavef Morgunblaðsins nú í morgunsárið.