Annar dómarinn í undanúrslitaleik Keflavíkur og Hauka í Powerade-bikar kvenna í körfuknattleik varð að hætta leik í hálfleik og bruna upp á fæðingardeild þangað sem konan hans var komin.
Dómarinn, Jóhann Gunnar Guðmundsson, rauk út úr Laugardalshöllinni rétt fyrir klukkan átta, og rétt um klukkan tíu í gærkvöldi hafði kona hans, Eva María Sveinsdóttir, alið annað barn þeirra.
Þetta er í annað sinn sem þau hjón lenda í þessu því þegar þau eignuðust sitt fyrsta barn, sem einnig var drengur, haustið 2006 var Jóhann einnig að dæma þegar kallið kom.