Keflvíkingar báru í kvöld sigurorð af Snæfellingum, 77:73, í Meistarakeppni Körfuknattleikssambands Íslands en liðin áttust við í Keflavík í kvöld. Keflvíkingar eru því meistararar meistaranna eins og kvennaliðið sem í dag hafði betur gegn Grindavík.
Sigurður Þorsteinsson var atkvæðamestur hjá Keflavík með 18 stig og næstur kom Hörður Axel Vilhjálmsson með 15 stig.
Hjá Snæfellingum var Sigurður Þorvaldsson stigahæstur með 23 stig og Atli Rafn Hreinsson skoraði 14 stig.