Tindastóll frá Sauðárkróki vann í kvöld góðan sigur á Njarðvík, 84:75, í úrvalsdeild karla, Iceland-Express deildinni, í körfuknattleik en leikurinn fór fram í Njarðvík.
Staðan í hálfleik var jöfn, 41:41, en Tindastóll náði síðan undirtökunum og staðan var 64:55 eftir þriðja leikhluta og sami munur skildi liðin að í lokin.
Benjamin Luber skoraði 26 stig fyrir Tindastól og Darrell Flake 18 og þá gerði Svavar Birgisson 14 stig. Magnús Gunnarsson gerði 21 stig fyrir Njarðvíkinga, Logi Gunnarsson 17 og Friðrik Stefánsson 15.