Roger Mason tryggði San Antonio 91:90 sigur á Phoenix í NBA deildinni í kvöld. Hann setti niður þriggja stiga körfu þegar 0,04 sekúndur voru til leiksloka.
Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann, heimamenn í Suns voru 27:18 fir eftir fyrsta leikhluta og virtust í góðum málum en í hálfleik hafði Spurs minnkað muninn, 45:39. Enn minkaði munurinn í þriðja leikhluta þó aðeins um eitt stig en þann síðasta vann Spurs 20:14.
Phoenix: Amar'e Stoudemire 25, Shaquille O'Neal 23, Grant Hill 16, Steve Nash 13, Jason Richardson 11, Leandro Barbosa 2
San Antonio: Tony Parker 27, Tim Duncan 25, Michael Finley 12, Manu Ginobili 11, Roger Mason 7, Matt Bonner 5, George Hill 2, Kurt Thomas 2