Úrvalsdeildarlið Snæfells í körfuknattleik karla ætlar að styrkja leikmannahóp sinn á næstunni og er verið að leita að leikstjórnanda.
Frá þessu er sagt á stykkishólmspóstinum en þar segir að menn séu með ákveðinn leikmann í huga sem þjálfararnir þekki vel til. Ákvörðun um þetta var tekinn á fundi stuðningsmanna Snæfells og stjórnar meistaraflokks karla á fundi í gær.