Snæfell úr Stykkishólmi hefur gert munnlegt samkomulag við bandaríska körfuknattleiksmanninn Lucious Wagner um að leika með þeim út þetta keppnistímabil. Karfan.is greinir frá þessu í dag.
Wagner er leikstjórnandi og lék með þjálfurum Snæfells, Hlyn Bæringssyni og Sigurði Þorvaldssyni, í Hollandi á sínum tíma. Þá hefur hann leikið í Finnlandi, Tékklandi og síðast í Líbanon.
Hlynur sagði við karfan.is að Wagner yrði ekki kominn fyrir næsta leik sem er gegn Skallagrími en vonir stæðu til þess að hann yrði mættur áður en Snæfell mætir Þór frá Akureyri.