Kobe Bryant hafði betur gegn LeBron James

Kobe Bryant hefur ástæðu til þess að brosa þessa dagana.
Kobe Bryant hefur ástæðu til þess að brosa þessa dagana. Reuters.

Los Angeles Lakers hafði betur gegn Cleveland Cavaliers í NBA körfuboltanum í kvöld 101:91. Leikið var í Cleveland og var þetta fyrsta tap liðsins á heimavelli á leiktíðinni.

Lakers þykja í augnablikinu vera líkleg meistaraefni en liðið hefur nú sigrað bæði Boston Celtics og Cleveland á útivöllum með skömmu millibili.

 Í aðdraganda leiksins var rætt um einvígi Kobe hjá Lakers og LeBron hjá Cleveland enda tvær allra stærstu stjörnur deildarinnar. Kobe var ótvíræður sigurvegari í því einvígi því LeBron náði sér ekki almennilega á strik. Skoraði hann 16 stig í leiknum en er með yfir 28 stig að meðaltali á tímabilinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert