Barkley stungið inn

Charles Barkley
Charles Barkley Reuters

Charles Barkley, fyrrum körfuboltahetja í NBA, hefur játað að hafa ekið bíl undir áhrifum áfengis og þarf kappinn meðal annars að fara í fimm daga fangelsi vegna þessa.

Barkley viðurkenndi að hafa verið undir áhrifum áfengis á gamlárskvöld þegar lögreglan í Scottsdale stöðvaði hann. Hinn 45 ára gamli Barkley var þá nýkominn út af næturklúbbi.

Samkvæmt dóminum þarf hann að sitja í fangelsi í fimm daga, borga ríflega 2.000 dollara sekt, um 226.000 krónur, og sækja áfengisvarnarfundi. Samkvæmt lögur í Arizona þarf hann jafnframt að hafa áfengismæli tengdan við svissinn í bílnum sínum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert