Carmelo Anthony fór á kostum með Denver í nótt og gerði 38 stig þegar liðið vann öruggan sigur á Portland, 106:90 í NBA-deildinni í körfuknattleik. Anthony var í leikbanni í leiknum á undan og kom ferskur til leiks að þessu sinni. Bannið fékk hann eftir að hafa hundsað ósk þjálfarans, George Karl, um að koma af leikvelli. Anthony lét sér þetta að kenningu verða og var sagður hafa brugðist skjótt við þegar Karl þjálfari kallaði hann af leikvelli í leiknum í nótt.
Brandon Roy gerði 22 fyrir Portland og LaMarcus Aldridge var með 19 stig þrátt fyrir magakveisu.
Aðeins tveir leikir voru á dagskrá í NBA-deildinni í nótt.
New Orleans - Dallas 104:88
Denver - Portland 106:90