Helena með stórleik í lokaleik deildakeppninnar

Helena Sverrisdóttir, TCU.
Helena Sverrisdóttir, TCU. mbl.is/TCU

Helena Sverrisdóttir skoraði 20 stig og tók 10 fráköst í 53.47-sigri TCU gegn Utah í lokaleik liðsins í bandarísku háskóladeildarinnar í körfuknattleik kvenna í gær. TCU var um tíma 13 stigum undir í fyrri hálfleik en stórleikur Helenu breytti gangi mála hjá TCU í síðari hálfleik. TCU vann 20 leiki á tímabilinu og tapaði 9. Helena náði átta sinnum tvöfaldri tvennu á tímabilinu með TCU en hún er á öðru ári sínu hjá skólaliðinu.

TCU leikur í úrslitakeppni Mountain West deildarinnar sem hefst á þriðjudaginn. TCU leikur þar í sigurliðinu úr viðureign BYU og UNLV.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert