Snæfell og Grindavík fögnuðu sigri í fyrstu leikjum sínum í 8-liða úrslitum Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik. Snæfell lagði bikarmeistara Stjörnunnar, 93:81, í Stykkishólmi. Grindavík vann stóran sigur á ÍR, 112:78, eftir að hafa verið með sex stiga forskot í hálfleik, 55:49. Liðin mætast aftur á mánudagskvöld í Garðabæ og í Seljaskóla.
Páll Axel Vilbergsson var stigahæstur hjá Grindavík með 28 stig. Nick Bradford og Brenton Birmingham gerðu 16 stig hvor. Sveinbjörn Claesen gerði 20 stig fyrir ÍR og Hreggviður Magnússon var með 19 stig.
Sigurður Þorvaldsson var atkvæðamestur hjá Snæfellingum með 23 stig og Luioce Wagner gerði 16 stig. Justin Shouse gerði 22 stig fyrir Stjörnuna og Jovan Zdravenski gerði 21 stig.
Hægt var að fylgjast með framvindu leikjanna með því að smella á hlekkina hér fyrir neðan.
Snæfell - Stjarnan, live stat.