Jón Arnór Stefánsson er ekki í leikmannahópi KR sem mætir Breiðabliki í fyrsta leik liðanna í rimmunni í 8 liða úrslitum Íslandsmótsins í körfuknattleik karla.
„Ég fékk högg á fótinn á æfingu í gær og get þess vegna ekki tekið þátt í þessum leik. Ég verð samt orðinn góður fyrir næsta leik,“ sagði Jón Arnór við Mbl.
Leikur KR og Breiðabliks hófst klukkan 19:15 í DHL höllinni, Frostaskjóli og mun Mbl draga það helsta saman eftir hvern leikhluta.