Keflvíkingar styrkja sig

Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í Keflavík hafa fengið liðsstyrk.
Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í Keflavík hafa fengið liðsstyrk. mbl.is/Golli

Karlalið Keflavíkur í körfuboltanum mun mæta til leiks með nýjan leikmann gegn Njarðvík fyrsta leik liðanna í 8 liða úrslitum úrslitakeppni Íslandsmótsins í körfubolta.

Leikmaðurinn sem um ræðir heitir Jesse Pellot Rosa og lék hann raunar með Keflavík í Poweradebikarnum í haust. Rosa er bandarískur og hefur leikið í Danmörku síðan hann var látinn fara frá Keflavík í haust vegna fjármála í kreppunni. Lauk tímabili liðs hans í Danmörku, SISU CPH í gær og voru Keflvíkingar fljótir að hafa samband við kappann til að styrkja lið sitt í baráttunni. Var það fréttavefurinn karfan.is sem greindi frá þessu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert