Glæsilegur sigur Hauka

Slavica Dimovska úr Haukum brýst í gegnum vörn Hamars.
Slavica Dimovska úr Haukum brýst í gegnum vörn Hamars. mbl.is/Ómar

Haukar unnu sigur á Hamri í fjórða leik liðanna í undanúrslitum kvenna í Íslandsmótinu sem fram fór í Hveragerði í kvöld. Fóru leikar 65:69. Eru Haukar því komnir áfram í úrslitaleikinn gegn KR, með því að sigra Hamar samtals 3:1.

Leikurinn var æsispennandi en Hamar leiddi megnið af leiknum. Munurinn var mestur 14 stig, en Haukar gáfust ekki upp og söxuðu smám saman á forskot Hamars. Í fjórða leikhluta komust þær í fyrsta skipti yfir síðan í byrjun leiks, 62:64, og hömpuðu loks sigri.

Stigahæst Hauka var Kristrún Sigurjónsdóttir með 24 stig en henni næst var Monika Knight með 13.

Hjá Hamri var Íris Ásgeirsdóttir með 17 stig, en LaKiste Barkus gerði 15.

Gangur leiksins: 2:0, 2:3, 10:5, 13:10, 18:15, 23:17, 23:22, 33:22, 37:24, 39:27, 42:28, 42:32, 44:38, 48:45, 53:47, 57:50, 58:55, 62:60, 62:64, 65:69.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert