Það ræðst í kvöld hvort það verður Snæfell eða bikarmeistarar Stjörnunnar sem komast í undanúrslit í Iceland Express-deildinni í körfuknattleik en liðin eigast við í oddaleik í Stykkishólmi klukkan 19.15 í kvöld.
Snæfell vann fyrstu rimmu liðanna á heimavelli, 93:81, en Stjörnumenn svöruðu heldur betur fyrir sig í Ásgarði í fyrrakvöld með því að vinna 20 stiga sigur, 99:79.
Fari Snæfell með sigur af hólmi í kvöld mætast í undanúrslitum KR og Keflavík annars vegar og hins vegar Grindavík og Snæfell.
Takist Stjörnumönnum hins vegar að sigra í Hólminum í kvöld mætast KR og Stjarnan í undanúrslitunum annars vegar og hins vegar Grindavík og Keflavík.