KR - Grindavík, myndasyrpa

Íslandsmeistaralið KR fagnar titlinum.
Íslandsmeistaralið KR fagnar titlinum. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

KR landaði 11. Íslandsmeistaratitlinum í körfuknattleik karla í gær með því að leggja Grindavík, 84:83, í oddaleik í Iceland Express deildinni. Stemningin var engu lík í DHL höll KR í gær þar sem að rúmlega 2000 áhofendur troðfylltu áhorfendapallana og komust færri að en vildu. Kjartan Þorbjörnsson ljósmyndari Morgunblaðsins var á svæðinu og fangaði stemninguna en ítarleg umfjöllun er um leikinn í Morgunblaðinu sem kemur út í dag, þriðjudag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert