Atlanta Hawks sló Miami Heat út úr úrslitakeppninni NBA körfuboltans í kvöld þegar liðin mættust í sjöunda sinn. Atlanta sigraði með þrettán stiga mun 91:78. Atlanta var yfir í hálfleik 49:36 og jók forskotið í þriðja leikhluta. Þó svo að leikmönnum Miami hafi tekist að klóra aðeins í bakkann í síðasta leikhlutanum þá var það ekki nóg og Dwyane Wade og félagar eru því farnir í sumarfrí.
Wade lagði sitt af mörkum og skoraði 31 stig en hjá Atlanta var Joe Johnson stigahæstur með 27 stig. Var þetta síðasti leikurinn í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Atlanta bíður erfitt verkefni en þeir mæta sjálfum
Le Bron James og samherjum í Cleveland Cavaliers.