Lakers í úrslit NBA

Kobe Bryant var allt í öllu í liði Lakers í …
Kobe Bryant var allt í öllu í liði Lakers í nótt að venju. Reuters

Los Angeles Lakers tryggði sér í nótt sæti í úrslitum bandarísku NBA körfuboltadeildarinnar þegar liðið lagði Denver Nuggets, 119:92, í sjötta leik viðureignar liðanna. Lakers unnu 4 leiki en Denver 2.

Þetta er í 30. skipti sem Lakers kemst í úrslitaviðureign NBA og 14 sinnum hefur liðið orðið meistari. Liðið komst í úrslit í fyrra en tapaði þar fyrir Boston Celtics.

Kobe Bryant skoraði 35 stig og átti 11 stoðsendingar og Pau Gasol skoraði 20 stig. Carmelo Anthony skoraði 25 stig fyrir Denver.  

Lakers mætir annaðhvort Orlando Magic eða Cleveland Cavaliers í úrslitunum. Staðan í viðureign þeirra liða er sú að Orlando hefur unnið 3 leiki en Cleveland tvo. Sjötti leikurinn fer fram í kvöld.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert