Jón Arnór Stefánsson og félagar hans hjá ítalska liðinu Benetton Treviso höfðu frekar lítið að gera í deildarmeistara Montepaschi Siena er liðin mættust í fyrsta leiknum í undanúrslitarimmu þeirra um ítalska meistaratitilinn.
Leikið var í Siena og unnu heimamenn 107:79. Benetton byrjaði val og var 30:28 yfir eftir fyrsta leikhluta en síðan náði liðið aðeins að skora 17 stig í næsta leikhluta og 16 í hvorum hinna tveggja en heimamenn gerðu til dæmis 33 stig í þriðja leikhluta.
Jón Arnór lék í 28 mínútur, gerði 12 stig og tók 4 fráköst.