Njarðvíkingar flykkjast heim

Guðmundur Jónsson (8) Þór, Rúnar Ingi Erlingsson (9) Breiðablik verða …
Guðmundur Jónsson (8) Þór, Rúnar Ingi Erlingsson (9) Breiðablik verða með Njarðvík næsta vetur. mbl.is/Ómar Óskarsson

Körfuknattleikslið Njarðvíkur hefurfengið mikinn liðsstyrk á síðustu dögu, en fjórir leikmenn, sem uppaldir eru í Ljónagryfjunni, hafa ákveðið að snúa heim á nýjan leik.

Samvæmt því er fram kemur á heimasíðu Njarðvíkur en þar segir að þeir Guðmundur Jónsson, Jóhann Árni Ólafsson, Kristján Rúnar Sigurðsson og Rúnar Ingi Erlingsson ætli að leika með liðinu næsta vetur.

Páll Kristinssin er líka genginn til liðs við Njarðvík frá Gindavík. Guðmundur lék með Þór í vetur, Kristján Rúnar og Rúnar Ingi hafa verið hjá Blikum síðustu tvö árin og Jóhann Árni lék með Proveo Merlins í Þýskalandi í vetur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert