Guðjón Skúlason skrifaði síðdegis undir samning við körfuknattleiksdeild Keflavíkur til þriggja ára, og tekur við þjálfun karlaliðs félagsins af Sigurði Ingimundarsyni sem fer til Svíþjóðar og tekur þar við liði Solna.
Guðjón hefur áður þjálfað Keflvíkinga hluta úr tímabili, þá ásamt Fal Harðarsyni, en hann lék með Keflvíkingum nær óslitið í 23 ár, frá 1983 til 2006.