Snæfell og Hamar úr Hveragerði áttust við í fyrstu umferð úrvalsdeildar karla í körfuknattleik í kvöld í Stykkishólmi. Snæfell hafði mikla yfirburði og sigraði 90:58. Hlynur Bæringsson skoraði 21 stig fyrir Snæfell og tók 17 fráköst að auki. Andre Dabney skoraði 18 stig fyrir Hamar.