James hafði betur gegn Wade í Miami

LeBron James treður hér yfir Jermaine O'Neal í leiknum í …
LeBron James treður hér yfir Jermaine O'Neal í leiknum í gær. Reuters

LeBron James skoraði 34 stig í 111:104 sigri Cleveland Cavaliers gegn Miami Heat á útivelli í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Dwayne Wade skoraði 36 stig fyrir heimaliðið. Mo Williams skoraði fimm þriggja stiga körfur fyrir Cleveland og skoraði hann 25 stig, Shaquille O'Neal skoraði 14 stig gegn sínu gamla liði en hann er leikmaður Cleveland.

Michael Beasley skoraði 24 stig fyrir Miami sem hefur aðeins tapað tveimur leikjum á tímabilinu.  

James og Wader eru báðir með lausa samninga næsta sumar og sagði Wade á miðvikudaginn að þeir félagar hefðu rætt þann möguleika að leika með sama liði á næstu leiktíð. Þeir vildu ekki svara þeirri spurningu eftir leikinn.

Michael Jordan fyrrum leikmaður Chicago Bulls sat og horfði á leikinn við hliðina á Pat Riley forseta Miami Heat. Scottie Pippen fyrrum liðsfélagi Jordan hjá Bulls var þar skammt hjá en Jordan er einn af eigendum NBA liðsins Charlotte Bobcats. 

Pat Riley og Michael Jordan ræddu málin í gær.
Pat Riley og Michael Jordan ræddu málin í gær. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert