Anthony með 50 stig gegn Knicks

Carmelo Anthony skoraði 50 stig í nótt.
Carmelo Anthony skoraði 50 stig í nótt. Reuters

Carmelo Anthony skoraði 50 stig í fyrsta skipti á ferlinum í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt, og tvö þau síðustu, úr vítaskotum undir lokin, gulltryggðu Denver Nuggets sigur á New York Knicks, 128:125.

Anthony hafði nokkrum sinnum komist nálægt 50 stigunum en náði þeim á réttum tíma. „Þetta eru tvö erfiðustu vítaskot sem ég hef tekið í langan tíma. Bæði vegna spennunnar í leiknum og svo þegar möguleikinn á 50 stigunum var fyrir hendi," sagði Anthony eftir leikinn.

New Jersey tapaði í 16. skipti í jafnmörgum leikjum á tímabilinu, nú  gegn Sacramento á útivelli, 96:109. Liðið er nú aðeins einum leik frá því að jafna NBA-metið í verstu byrjun á tímabilinu, og sautjándi leikurinn er gegn meisturum LA Lakers á útivelli annað kvöld.

Úrslitin í nótt:

Charlotte - Cleveland 94:87
Miami - Washington 84:94
Philadelphia - Atlanta 86:100
Boston - Toronto 116:103
Detroit - LA Clippers 96:104
Indiana - Dallas 92:113
Oklahoma - Milwaukee 108:90
Houston - San Antonio 84:92
Denver - New York 128:125
Minnesota - Phoenix 95:120
Portland - Memphis 96:106
Sacramento - New Jersey 109:96

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert