Erkifjendurnir á Suðurnesjum, grannarnir Keflavík og Njarðvík, mætast í átta liða úrslitunum í bikarkeppni karla í körfuknattleik, Subwaybikarnum, en dregið var til þeirra rétt í þessu, bæði í karla- og kvennaflokki.
Stórleikurinn í kvennaflokki verður viðureign Keflavíkur og Hamars. Bæði bikarmeistaraliðin eru þegar fallin úr keppni, karlalið Stjörnunnar og kvennalið KR.
Þessi lið drógust saman:
Karlar:
Snæfell - Fjölnir
Keflavík - Njarðvík
Tindastóll - Grindavík
Breiðablik - ÍR
Konur:
Fjölnir - Laugdælir
Keflavík - Hamar
Njarðvík - Þór Ak.
Snæfell - Haukar
Leikirnir fara fram 16.-18. janúar.