Brandon Roy var í miklum ham í nótt og skoraði 41 stig þegar meiðslum hrjáð lið Portland Trail Blazers lagði Denver Nuggets að velli, 107:96, í NBA-deildinni í körfuknattleik.
Uppselt var í Rose Garden í Portland þar sem ríflega 20 þúsund manns sáu sína menn vinna fjórða leikinn í röð, enda þótt í lið þeirra vanti fimm sterka leikmenn. Roy, sem gerði 25 stig í fyrri hálfleik, skyggði á stigahæsta leikmann deildarinnar, Carmelo Anthony, sem þó var langbestur hjá Denver og skoraði 32 stig.
Í hinum leik næturinnar vann Phoenix Suns stórsigur á LA Clippers, 124:93. Stærsta atvikið í þeim leik átti sér stað um leið og flautað var til hálfleiks en þá skoraði Grant Hill fyrir Clippers með gríðarlegu langskoti, frá eigin vallarhelmingi. Amare Stoudamire var stigahæstur hjá Phoenix með 26 stig.