Þriggja stiga flautukarfa frá Bryant tryggði Lakers sigur

Kobe Bryant var hetja Lakers í nótt.
Kobe Bryant var hetja Lakers í nótt. Reuters

Kobe Bryant skoraði 3ja stiga flautukörfu og tryggði LA Lakers sigur gegn Sacramento, 109:108, í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt. Braynt skoraði 39 stig í leiknum og næstur kom Lamar Odom með 20 stig.

Spencer Hawes var stigahæstur í liði Sacramento með 30 stig og Omri Casspi kom næstur með 23 stig.

Þetta var þriðji leikurinn á tímabilinu sem Bryant tryggir sínum mönnum sigurinn en hann skoraði 27 af 39 stigum sínum í leiknum í fyrri hálfleik.

Nate Robinson fór á kostum í liði New York í sigri liðsins á Atalanta í framlengdum leik. Leiknum lyktaði með sigri New York, 112:108, og skoraði Robinson 41 stig í leiknum.

Úrslitin í nótt:

New York - Attana 112:108

Orlando - Minnesota 106:94

LA Lakers - Sacramento 109:108


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert