Körfuknattleikslið ÍR-inga hefur fengið liðsauka fyrir baráttuna seinni hluta vetrar en bandaríski leikstjórnandinn Mike Jefferson gekk í dag til liðs við Breiðholtsfélagið.
Jefferson er 25 ára gamall og lék á síðasta tímabili með Geneve Devils í Sviss. Þar skoraði hann að meðaltali 16 stig í leik og átti 5,4 stoðsendingar.