Stórsigrar hjá Snæfell og Keflavík

Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar hans í Kefflavík taka á …
Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar hans í Kefflavík taka á móti Stjörnunni. mbl.is/Golli

Þrír leikir fóru fram í úrvalsdeild karla í kvöld, Iceland Express deildinni. Keflavík tók á móti efsta liði deildarinnar, Stjörnunni, og hafði Keflavík mikla yfirburði í 118:83 sigri. Í Stykkishólmi tók Snæfell lið Breiðabliks í kennslustund, lokatölur, 109:74.

Draelon Burns skoraði 30 stig fyrir Keflavík, Gunnar Einarsson skoraði 23 og Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði 22. Justin Shouse var stigahæstur í liði Stjörnunnar með 21 stig.   

Sigurður Þorvaldsson var stigahæstur í liði Snæfells með 22 stig, Hlynur Bæringsson skoraði 21 og tók 18 fráköst. Sean Burton skoraði 14 stig fyrir Snæfell og gaf 12 stoðsendingar.  Jonathan Schmidt var stigahæstur í liði Breiðabliks með 19 stig. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert