Breiðablik lagði ÍR á útivelli í úrvalsdeild karla í kvöld, 100:86, og er þetta aðeins þriðji sigurleikur Blika á tímabilinu. Breiðablik og Fjölnir eru jöfn að stigum með 6 stig en FSu er á botninum með 2 stig. ÍR er með 10 stig. Jeremy Caldwell var stigahæstur í liði Blika með 26 stig og Daníel Guðmundsson skoraði 24. Michael Jefferson var stigahæstur hjá ÍR með 26 stig en Hreggviður Magnússon skoraði 25.