Breiðablik vann mikilvægan sigur gegn Tindastóli í Iceland Express deildinni í körfuknattleik í Smáranum í kvöld 85:77. Blikar hafa nú unnið tvo leiki í röð í deildinni og eru með 8 stig í deildinni eins og nýliðar Fjölnis en Tindastóll og ÍR hafa 10 stig.
Jonathan Schmidt var stigahæstur Blika með 25 stig en Daníel Guðmundsson kom næstur með 15 stig. Cedric Isom var langstigahæstur hjá Tindastóli með 32 stig en Svavar Birgisson gerði 18 stig.