Nate Robinson leikmaður New York Knicks sigraði í troðslukeppni NBA deildarinnar í gær í Dallas en þetta er í þriðja sinn sem Robison vinnur þessa keppni. Robinson er 25 ára gamall en hann er aðeins 1.75 m. á hæð en körfuhringurinn er í 3.05 m. hæð.
Robinson sigraði einnig árið 2006 og 2009.
DeMar DeRozan frá Toronto varð annar.