Páll Kolbeinsson heldur ekki áfram þjálfun karlaliðs KR í körfuknattleik. Hann greindi frá þessu í kvöld eftir að KR-liðið tapaði fyrir Snæfelli í oddaleik í undanúrslitum Íslandsmótsins á heimavelli sínum.
Páll tók við þjálfun KR-liðsins á síðasta sumri eftir að Benedikt Guðmundsson hætti. Illa gekk að finna þjálfara í stað Benedikts og lét Páll því til leiðast að stýra KR-liðinu yfir eitt keppnistímabil. Það kemur í hlut Páls að leita að eftirmanni sínum þar sem hann er formaður meistaraflokksráðs körfuknattleiksdeildar KR.