„Það er mikil spenna og eftirvænting í bænum fyrir leikinn. Það gæti gerst að það yrðu fleiri áhorfendur á þessum leik en búa í bænum sjálfum,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson þjálfari Snæfells sem getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik karla í fyrsta sinn í sögu félagsins í kvöld.
Snæfell mætir Keflavík á heimavelli og hafa forsvarsmenn Snæfells gert ráð fyrir að taka á móti allt að 1.200 áhorfendum, en það búa um 1.100 í Stykkishólmi.
Leikurinn hefst kl. 19.15 og verður fylgst með gangi mála á mbl.is
„Við tókum góða æfingu í gær og liðsfund. Það eru allir heilir en vissulega eru
menn með ýmis smámeiðsli sem gleymast þegar leikurinn byrjar. Við þurfum að
koma þessari spennu og eftirvæntingu sem býr í okkur í leikinn sjálfan,“ bætti
Ingi við.
Bandaríski leikmaðurinn Jeb Ivey kom til Snæfells „rétt“ áður en annar
úrslitaleikurinn hófst í Stykkishólmi á dögunum en hann var fenginn til þess að
fylla skarðið sem Sean Burton skildi eftir sig. Burton er meiddur á ökkla en
hann er enn í Stykkishólmi og hefur hann aðstoðað Ivey á undanförnum dögum að
komast betur inn í leikkerfi Snæfellsliðsins.
„Ivey er að komast betur inn í
hlutina hjá okkur. Vissulega hefur sóknarleikurinn verið stirður á köflum, við
vissum að það myndi gerast. Hann er mun betri skotmaður en hann hefur sýnt í
fyrstu tveimur leikjunum með okkur,“
sagði Ingi Þór í samtali við mbl.is í morgun.