Benedikt tekur við Þór Þorlákshöfn

Benedikt Guðmundsson.
Benedikt Guðmundsson. mbl.is/Hag

Benedikt Guðmundsson verður næsti þjálfari 1. deildarliðs Þórs Þorlákshöfn. Að því er fram kemur á vefnum sunnlenska.is mun Benedikt skrifa undir þriggja ára samning við Þorlákshafnarliðið.

Benedikt gerði KR konur Íslandsmeisturum á nýafstaðinni leiktíð og í fyrra varð karlalið KR Íslandsmeistari undir hans stjórn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert