Phoenix afgreiddi San Antonio

Jason Richardson hjá Phoenix treður boltanum í körfuna hjá San …
Jason Richardson hjá Phoenix treður boltanum í körfuna hjá San Antonio í leiknum í nótt. Reuters

Phoenix Suns er komið í úrslitin í Vesturdeild NBA í körfuknattleik eftir fjórða sigurinn á San Antonio Spurs í jafnmörgum leikjum, 107:101, í San Antonio í nótt.

Það verða því nær örugglega Phoenix og LA Lakers sem eigast við í úrslitaviðureignunum í vestrinu en Lakers er 3:0 yfir gegn Utah Jazz.

Reynsluboltarnir Steve Nash og Amar'e Stoudamire voru einu sinni sem oftar í aðalhlutverkum hjá Phoenix. Stoudamire skoraði 29 stig og Nash átti 9 stoðsendingar, þar af 5 á lokakafla leiksins. Tony Parker skoraði 22 stig fyrir San Antonio.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert