Phoenix Suns jafnaði í nótt einvígið gegn LA Lakers með góðum heimasigri, 115:106. Liðin eru þar með jöfn, 2:2, í baráttu sinni í úrslitum Vesturdeildar NBA í körfuknattleik.
Það voru varamenn Phoenix, með Channing Frye í fararbroddi, sem gerðu útslagið að þessu sinni en þeir skoruðu 54 af 115 stigum liðsins, á meðan varamenn Lakers gerðu aðeins 20 stig í leiknum. Frye og Leandro Barbosa skoruðu 14 stig hvor.
Af byrjunarliðsmönnum Phoenix var Amar'e Stoudamire atkvæðamestur með 28 stig og tók 10 fráköst. Nefbrotinn Steve Nash skoraði 15 stig og átti 8 stoðsendingar.
Kobe Bryant var áfram í góðum gír hjá Lakers þó það dygði ekki til en hann skoraði 38 stig og tók 10 fráköst. Pau Gasol skoraði 15 stig.