Stuðningsmenn NBA liðsins Cleveland Cavaliers hafa á undanförnum árum keypt ótrúlegt magn af keppnistreyjum og öðrum varningi með nafni og keppnisnúmeri LeBron James á undanförnum sjö árum. Eftir að leikmaðurinn ákvað semja ekki við félagið í sumar og ganga til liðs við Miami Heat vildu margir reiðir stuðningsmenn liðsins sýna óánægju sína með ákvörðunina með því að henda keppnistreyjum með númerinu 23 og nafni LeBron James á bakinu.
Forsvarsmenn góðgerðarstofnunnar í Cleveland sáu sér leik á borði og hafa óskað eftir því að reiðir stuðningsmenn liðsins „gefi“ þeim treyjurnar og LeBron James varning sem þeir hafa ekki áhuga á að eiga. Varningurinn verður síðan sendur til Suður-Flórída þar sem að honum verður úthlutað til skjólstæðinga góðgerðastofnunarinnar .