Lakers tapaði á heimavelli

Frá viðureign Sacramento og Detroit í nótt.
Frá viðureign Sacramento og Detroit í nótt. Reuters

Los Angeles Lakers tapaði í gærkvöldi öðru leik sínum í NBA-deildinni í körfuknattleik og það á heimavelli. Að þessu sinni voru liðsmenn Phoenix sem höfðu betur í heimsókn sinni í Staples, 121:116.

Jason Richardsson átti stórleik fyrir Phoenix og gerði alls 35 stig. Steve Nash gerði 21 stig. Paul Gasol á átti einnig afar góðan leik fyrir Lakers-liðið. Hann skoraði 28 stig. Kobe Bryant skoraði 25 stig.

Úrslit leikja næturinnar í NBA-deildinni voru sem hér segir:

Atlanta - Miami 111:105
Sacramento - Detroit 94:100
Okltahoma City Thunders - San Antonio Spurs 104:117
New York Knicks - Houston Rockets 96:104
Los Angeles Lakers - Phoenix 116:121

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert