Íslendingaliðið Sundsvall hélt sigurgöngu sinni áfram í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik i kvöld. Sundsvall sótti Örebro heim og vann öruggan sigur, 97:78. Hlynur Bæringsson var stigahæstur í liði Sundsvall með 23 stig. Hann tók 10 fráköst og átti 3 stoðsendingar. Jakob Örn Sigurðarson skoraði 14 stig, tók 2 fráköst og átti 6 stoðsendingar.
Sundsvall er í toppsæti deildarinnar. Liðið er með 46 stig en það hefur unnið 23 leiki en tapað 5. LB Basket er í öðru sæti með 38 stig.