Pálína: Þetta er okkar ár

Pálína Gunnlaugsdóttir, leikmaður Keflavíkur, segir það leiðinlegt að Margrét Kara Sturludóttir, fyrrverandi leikmaður Keflavíkur, muni missa af fyrstu tveimur leikjunum í undanúrslitarimmu liðanna vegna leikbanns.

Keflavík tekur á móti KR í fyrsta leik undanúrslitanna í Keflavík á morgun klukkan 16.00.

Pálína segist vera farin að sakna þess að lyfta Íslandsmeistaratitlinum en hún varð Íslandsmeistari þrjú ár í röð með Haukum og Keflavík fyrir nokkrum árum. Hún segir að árið 2011 sé ár Keflavíkurliðsins en liðið varð bikarmeistari á dögunum og sigraði þá einmitt KR í úrslitaleik. 

Pálína Gunnlaugsdóttir Keflavík.
Pálína Gunnlaugsdóttir Keflavík. mbl.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert