Sundsvall að missa af titlinum?

Hlynur Bæringsson skoraði 17 stig í dag.
Hlynur Bæringsson skoraði 17 stig í dag. mbl.is/hag

Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson létu mikið til sín taka með Sundsvall Dragons í dag gegn Norrköping Dolphins í úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik. Það dugði þó ekki til því Norrköping vann og er nú 3:2 yfir í einvíginu.

Norrköping vann 87:75 í dag en vinna þarf fjóra leiki til að verða meistari og þarf Sundsvall því að vinna næstu tvo leiki.

Hlynur skoraði 17 stig í dag, tók 9 fráköst og gaf 7 stoðsendingar, en Jakob var með 16 stig og tók 4 fráköst.

Liðin mætast að nýju á fimmtudag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert