Teitur samdi aftur við Stjörnuna

Teitur Örlygsson
Teitur Örlygsson mbl.is/hag

Stjarnan hefur samið við Teit Örlygsson um að þjálfa áfram meistaraflokkslið félagsins í körfubolta næstu tvö árin. Undir hans stjórn náði Stjarnan sínum besta árangri á nýliðnu tímabili þegar það lék til úrslita við KR um Íslandsmeistaratitilinn.

Teitur hefur nú stýrt liði Stjörnunnar í hálft þriðja ár en á vef félagsins segir að lögð hafi verið mikil áhersla á að semja við hann aftur og gengið hafi verið frá samningnum í dag, þriðjudag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert