Útlit er fyrir miklar breytingar á liði Njarðvíkinga næstu leiktíð í Iceland Express-deildinni í körfuknattleik. Í gær greindi vefsíðan karfan.is frá því að bakvörðurinn Guðmundur Jónsson hefði ákveðið að ganga til liðs við nýliðana í Þór frá Þorlákshöfn. Einnig liggur ljóst fyrir að Jóhann Árni Ólafsson mun ekki leika áfram með Njarðvík.
Báðir voru þeir atkvæðamiklir hjá Njarðvík á síðustu leiktíð og þá sérstaklega fyrri hluta tímabilsins. Jóhann Árni var bæði hæstur að meðaltali í stigaskori og stoðsendingum hjá Njarðvík, en hann og Guðmundur voru báðir með rúmlega 12 stig að meðaltali.
Samkvæmt öruggum heimildum Morgunblaðsins hefur Jóhann Árni verið í viðræðum við Grindavík í nokkurn tíma og þar á bæ eru menn vongóðir um að Jóhann gangi til liðs við félagið. Unnusta hans, Petrúnella Skúladóttir, lék með Grindavíkurliðinu í mörg ár en tók sér frí á síðasta tímabili. Vafalaust hafa fleiri lið sett sig í samband við Jóhann, og viðmælendur Morgunblaðsins nefndu Fjölni til sögunnar, en þar heldur Njarðvíkingurinn Örvar Þór Kristjánsson um stjórnartaumana.