Eigendur liða í bandarísku körfuboltadeildinni NBA og leikmenn hafa staðfest samkomulag um skiptingu tekna. Ekkert hefur verið leikið í deildinni í vetur vegna launadeilunnar en nú er ljóst að keppnin hefst um jólin.
Um er að ræða tíu ára samning en hvor aðili um sig getur sagt honum upp eftir sex ár.
Keppnistímabilið hefst með fimm leikjum á jóladag og munu þá m.a. mætast Los Angeles Lakers og Chicago Bulls, og Dallas Mavericks og Miami Heat.