Spila án Baker og Hardy

Lele Hardy í leik með Njarðvík gegn Fjölni fyrr í …
Lele Hardy í leik með Njarðvík gegn Fjölni fyrr í vetur. mbl.is/Golli

Njarðvík verður án bandarísku leikmannanna, Shanae Baker og Lele Hardy, þegar liðið mætir Fjölni í Iceland Expressdeild kvenna í körfuknattleik í kvöld. Þær eru nú staddar í Bandaríkjunum en að sögn Sverris Þórs Sverrissonar, þjálfara liðsins, fór eitthvað úrskeiðis í pappírsvinnunni þegar kom að því að framlengja dvöl þeirra hérlendis.

Ekki liggur fyrir hvort búið verði að kippa þessu í liðinn fyrir næstu helgi en þá mætir Njarðvík liði Vals á útivelli áður en deildin fer í jólafrí. Svo gæti því farið að þær Baker og Hardy, sem hafa verið mjög atkvæðamiklar, missi af tveimur deildaleikjum. „Þær þurftu að fara úr landi í síðustu viku og verða ekki með á morgun (í kvöld) og óvíst er hvort þær verða komnar fyrir leikinn á móti Val. Þær áttu að koma með vélinni í nótt en svo kom í ljós að málið var ekki frágengið og við verðum því með alíslenskt lið í kvöld,“ sagði Sverrir við Morgunblaðið en lið Njarðvíkur er í 2. sæti deildarinnar. kris@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert