Paul George og Roy Hibbert settu báðir félagsmet þegar lið þeirra Indiana Pacers sigraði New Orleans Hornets 115:107 í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.
George hitti úr níu þriggja stiga skotum sem er félagsmet og skoraði alls 37 stig í leiknum. Hibbert náði þrefaldri tvennu og varði hvorki fleiri né færri en ellefu skot sem einnig er félagsmet.
Alls fóru þrettán leikir fram í deildinni í nótt og tapaði LA Lakers fyrir Sacramento Kings á útivelli. Þá vann Houston Rockets lið Chicago Bulls. Liðin sem spiluðu til úrslita í fyrra, Miami Heat og Oklahoma City Thunder, þurftu bæði að fara í framlengingu en höfðu bæði sigur.
Úrslit næturinnar:
Charlotte - Toronto 98:97
Orlando - Detroit 90:74
Cleveland - Philadelphia 92:83
Indiana - New Orleans 115:107
Boston - San Antonio 100:112
Atlanta - Washington 101:100
Miami - Milwaukee 113:106
Oklahoma - LA Clippers 117:111
Houston - Chicago 93:89
Minnesota - Denver 94:101
Dallas - New York 114:111
Pheonix - Portland 114:87
Sacramento - LA Lakers 113:97
Golden State - Brooklyn 102:93