Tvö af þremur efstu liðum úrvalsdeildar karla í körfuknattleik, Dominos-deildinni, leiða saman hesta sína í íþróttahúsinu í Stykkishólmi í kvöld þegar Snæfellingar fá Benedikt Guðmundsson og lærisveina hans í Þór úr Þorlákshöfn í heimsókn.
Bæði lið hafa 14 stig að loknum níu umferðum í deildinni. Íslandsmeistarar Grindavíkur, sem einnig hafa 14 stig eftir níu leiki í deildinni, sækja Fjölni heim í Dalhús í Grafarvogi.
Heil umferð verður í Dominosdeildinni í kvöld og hefjast allir leikirnir klukkan 19.15.
Auk leikjanna tveggja sem að ofan er getið fara leikmenn Stjörnunnar til Ísafjarðar og mæta liðsmönnum KFÍ. Tindastóll, sem vann sinn fyrsta leik í deildinni fyrir viku, fær ÍR-inga í heimsókn í íþróttahúsið á Sauðárkróki. Suðurnesjaliðin Keflavík og Njarðvík eigast við í Toyota-höllinni í Reykjanesbæ. Loks fær Skallagrímur lið KR í heimsókn í Borgarnes.
Umferðin í kvöld er sú síðasta í deildinni fyrir jól.